Barnaaugnlækningar
Hvers vegna þarf að meta
sjón barna?
Sjón barna þroskast á fyrstu 8 til 10 árum ævinnar. Á þessum árum myndast taugabrautir í miðtaugakerfinu.
Letiauga er langalgengasta orsök sjónskerðingar á öðru eða báðum augum hjá börnum.
Til þess að sjónþroskinn sé eðlilegur þarf skýr mynd að koma inn á sjónhimnuna í gegnum hornhimnuna (glæruna), augastein og glerhlaup. Eftir þessi ár er erfitt að leiðrétta sjónþroska vegna letiauga.
Hvað er letiauga
(amblyopia)?
Algengustu orsakir letiauga:
- Sjónlagsgallar eins og t.d. fjarsýni (hyperopia ) og sjónskekkja (astigmatism), þar sem sú mynd er nemur sjónhimnuna er óskýr. Heilinn hefur þá ekki möguleika á að þroska eðlilegar taugarbrautir.
- Skjálgi (strabismus), þar sem barnið beitir því auga, sem liggur betur í sjónlínu.
- Augnsjúkdómar, sem hindra eðlilegan sjónþroska, eins og t.d. ský á augasteini.
Hvernig er hægt að uppgötva letiauga?
Með sjónmælingu á heilsugæslu er reynt að finna þau börn sem sjá annað hvort illa á öðru eða báðum augum og fer hún fram við 3-5 ára aldur. Letiauga er einnig oft uppgötvað fyrr ef um skjálga er að ræða eða ef óbein mæling er framkvæmd t.d. í sjónmælingartæki.
Hvað er hægt að gera?
Fyrir 9 ára aldur er hægt að leiðrétta sjónlagsgalla með gleraugum til að fá skýra mynd inn á sjónhimnuna og oft leiðrétta gleraugu einnig skjálga. Ef um mikinn mun á sjónskerpu á milli augna er að ræða þarf einnig að beita lepp tímabundið til þess að þvinga barnið til þess að nota verra augað.
Tilvísun frá heimilis- eða heilsugæslulækni kemur til lækkunar á reikningi einstaklinga sem eru yngri en 18 ára.
Tilvísunin þarf að hafa borist Sjónlagi áður en þjónustan er veitt.