Augnsjúkdómar

Vantar þig ráðgjöf hvaða sjónlagsaðgerð hentar þér best?

Ský á augasteini

Augasteinninn er mjúkur og breytir auðveldlega um lögun hjá þeim sem yngri eru.

Með hækkandi aldri breytist augasteinninnn, hann harðnar og stækkar. Ský á augasteini nefnist það þegar tærleiki augasteinsins minnkar og sjónin skerðist. Ský á augasteini getur komið fyrir á öllum aldri en algengi þess eykst mikið með hækkandi aldri.

Eina meðferðarúrræðið er að fjarlægja augasteininn og setja gerviaugastein í staðinn. Talið er að útfjólubláir geislar sólarinnar séu helsti orsakavaldur skýs á augasteini. Sykursýki, barksterar og reykingar auka á áhættuna.

Einkenni

Eitt eða fleira af eftirfarandi geta m.a. verið einkenni skýs á augsteini:

Meðferð

Meðferðin við skýi á augasteini er fólgin í aðgerð þar sem augsteinninn er fjarlægður og gerviaugasteinn settur í staðinn. Ef ský á augasteini veldur sjúklingi einkennum (sbr. ofan), sérstaklega ef þau hamla daglegu lífi, er rétt að íhuga skurðaðgerð.

Nýjar tegundir gerviaugasteina

Sjúklingar sem fá hefðbundna einfókus gerviaugasteina fá yfirleitt góða sjón, sérstaklega til að sjá frá sér og allt niður í 70 sentímetra. Flestir sjúklinganna þurfa þó að nota gleraugu til að sjá vel nálægt sér, t.d. við lestur.

Sjónlag framkævmir aðgerðir þegar ský er komið á augastein. Þetta er nauðsynleg aðgerð til þess að endurheimta sjón. Augasteinn sem Sjónlag notar gefur betri nærsjón en hefðbundinn einfókus augasteinn. Biðtími eftir slíkri aðgerð hjá Sjónlagi er alla jafnan mjög stuttur. Hægt er að gera aðgerð á báðum augum í einu, ekki er nauðsynlegt að bíða með seinni aðgerðina sem er mikill kostur fyrir sjúkling. 

Stöðugt eru í þróun nýjar tegundir gerviaugasteina sem eiga það sameiginlegt að gera einstaklinga minna háða gleraugum. Aðgerð með fjölfókus augasteinum gæti komið sér vel fyrir þá sem komnir eru yfir fimmtugt eða eru með þunnar hornhimnur eða mikinn sjónlagsgalla. Einn af kostum aðgerðarinnar er að sá sem hefur undirgengist augasteinaskipti á ekki á hættu að fá ský á augastein síðar meir. Fyrir þá sem vilja geta lesið án lesgleraugna er augasteinaskipti með ísetningu fjölfókus gerviaugasteins góður kostur.

Þeir sem hafa fengið einfókus augasteinaskipti geta látið breyta sjónlagi sínu með laseraðgerð, nokkuð sem margir vita ekki af. ATH VANTAR MEIRA KJÖT