Hvarmabólga
Hvarmabólga (blepharitis) er einn af algengustu augnsjúkdómum á Íslandi.
Hvarmabólga getur valdið einkennum sem eru afar óþægileg og hafa ríkuleg áhrif á daglegt líf fólks.
Hvarmabólga er yfirleitt fremur góðkynja sjúkdómur en getur þó í undantekningartilfellum valdið augnskaða og jafnvel varanlegu sjóntapi. Í þeim tilvikum verður erting frá hvörmum svo mikil á auganu að slímhimna augans vex inn á hornhimnu eða að hornhimna augans þynnist og skemmist.
Hvarmabólga getur einnig valdið augnloksþrymlum (chalazion) sem í börnum kemur oft fram sem vogris (stye). Hvort tveggja eru stíflaðir fitukirtlar sem blása út og valda oft miklum óþægindum.
Um ástæður sjúkdómsins er lítið vitað en talið er að um sé að ræða ofnæmi fyrir bakteríum sem við erum öll með á hvörmunum. Ofnæmið veldur langvinnri bólgu í hvörmum, með roða og þrota sem truflar oft starfsemi fitukirtla í hvörmunum.
Fitukirtlar þessir búa til fitu sem er nauðsynleg fyrir tárafilmuna. Ef gæði tárafilmunnar er ekki í lagi þá helst rakinn ekki á auganu heldur gufar hann upp eða lekur í formi tára. Því eru þurr augu oft fylgifiskur hvarmabólgu.
Meðferð
Flestar gerðir hvarmabólgu eru ekki vegna sýkingar og eru því jafnan ekki smitandi.
Gagnslítið er að bera sýklalyf á hvarmana, þar sem bakteríur þessar eru alls staðar í umhverfi okkar og setjast aftur á hvarmana þegar notkun sýklalyfsins lýkur.
Jafnframt er mælt með því að taka lýsi eða Omega-3 fitusýruperlur.
Þvottur hvarma er mikilvægur.
Einstaka sinnum þarf að beita öðrum meðferðarmöguleikum, s.s. sýklalyfjum o.fl. en í flestum tilvikum nægja augnheilbrigðisvörurnar, gelið, froðan og/eða klútarnir – hvarmaþvotturinn.
Hvað veldur?
Líkt og áður segir er margt á huldu hvað varðar orsök og tilurð þessa sjúkdóms. Hann virðist vera algengari í ljóshærðu fólki og er rauðhærðum einstaklingum sérstaklega hætt við að fá hvarmabólgu. Líklega kemur ofnæmi inn í tilurð sjúkdómsins á einhverju stigi, sennilega gegn bakteríum sem við erum öll með á hvörmum okkar.
Sum lyf geta stuðlað að hvarmabólgu, s.s. sum krabbameinslyf og húðþrymlalyfið Roaccutane.
Hvarmabólga er afar algeng í ýmsum húðsjúkdómum, s.s. flösuexemi, enda eru hvarmarnir einungis húðfellingin í kringum augun. Jafnframt hafa rannsóknir sýnt fram á fylgni hvarmabólgu við heilkenni Downs.
Flestar gerðir hvarmabólgu eru ekki vegna sýkingar og eru því jafnan ekki smitandi.
Meðferð
Meðferð hvarmabólgu er oftast ekki flókin en hún krefst töluverðrar natni og reglusemi.
Með tilkomu augnheilbrigðisvara er meðferðin orðin vænari á augun og húðina í kring en sterkari á bakteríurnar. Þessar vörur eru dauðhreinsaðar (sterile) í formi bæði gels í túpu, froðu og blautklúta. Vörur sem ættu að létta fólki með hvarmabólgu lífið.
- Heitir bakstrar
- Þvottur hvarma er mikilvægur. Hægt er að notast við ýmsar augheilbrigðisvörur sem eru til í formi gels, froðu og blautklúta.
- Mælt með því að taka lýsi eða Omega-3 fitusýruperlur.
- Einstaka sinnum þarf að beita öðrum meðferðarmöguleikum, s.s. sýklalyfjum o.fl. en í flestum tilvikum nægja augnheilbrigðisvörurnar og þvottur. ATH SKOÐA NÁNAR!
- Gagnslítið er að bera sýklalyf á hvarmana, þar sem bakteríur þessar eru alls staðar í umhverfi okkar og setjast aftur á hvarmana þegar notkun sýklalyfsins lýkur.
Meðferð hvarmabólgu er oftast ekki flókin en hún krefst töluverðrar natni og reglusemi.
Fáðu ráðgjöf hjá augnlækni varðandi meðferð.