Augnsjúkdómar

Vantar þig ráðgjöf hvaða sjónlagsaðgerð hentar þér best?

Sykursýki

Sykursýki getur haft mikil áhrif á augu og augnbotna. Breytingar koma aðallega fram í sjónhimnu. Flestir sem hafa haft sykursýki lengur en 20 ár bera þess einhver merki í augnbotnum.

Sjónhimnusjúkdómur kemur venjulega fram eftir að fólk hefur haft sykursýki í nokkur ár. Fyrstu merkin eru litlar blæðingar og æðapokar í háræðum sjónhimnu. Fólk verður yfirleitt ekki vart við fyrstu einkenni. Í framhaldi af þessu þróast stundum bjúgur í sjónhimnu, en sjónhimnubjúgur er algengasta orsök sjóndepru hjá sykursjúkum.

Hvað veldur?

Flestir sykursýkissjúklingar á Íslandi koma í reglulegt eftirlit þar sem fylgst er með breytingum á sjónhimnu og öðrum hlutum augna. Venjulega er eftirlitið árlega, en fer þó eftir aðstæðum.

 

Helstu meðferðir

Hvað skal gera?

Mjög mikilvægt er að vera í reglubundnu eftirliti hjá augnlækni þar sem fylgst er með breytingum í augnbotnum. Ýmsar rannsóknir þarf að gera til að fá nákvæma greiningu og þannig ákvarða rétta meðferð ef þörf krefur.

Meðferð

Meðferðir við sjónhimnusjúkdómi tengdum sykursýki eru; lasermeðferð, sem er fyrst og fremst fyrirbyggjandi, lyfjameðferð sem mun aukast í framtíðinni og skurðaðgerðir, ef sjónin hefur þegar daprast.

Lasermeðferðin á best við um minniháttar bjúg eða við æðanýmyndun áður en meiriháttar blæðing hefur orðið.

Þetta þýðir að lasermeðferðin á best við á þeim tíma þegar augun eru tiltölulega einkennalaus, enda er lasermeðferðin fyrst og fremst gagnleg til að hindra sjóntap frekar en að bæta sjón sem þegar hefur tapast. Því er nauðsynlegt að skoða augu sykursýkissjúklinga reglulega, til að finna minni háttar bjúg og æðanýmyndun og meðhöndla fyrirbyggjandi áður en sjóntap verður.

 

Augneftirlit sykursjúkra einu sinni á ári.

 

Flestir sykursýkissjúklingar á Íslandi koma í reglulegt eftirlit þar sem fylgst er með breytingum á sjónhimnu og öðrum hlutum augna. Venjulega er eftirlitið árlega, en fer þó eftir aðstæðum. Þetta forvarnarstarf miðar að því að halda sykursýkisblindu í skefjum á Íslandi, en sykursýki er ein meginorsök blindu á Vesturlöndum. Sjóntap vegna sykursýki er nú sjaldgæfara á Íslandi en í nágrannalöndunum.