Nærsýni, fjarsýni og sjónskekkja

Er kominn tími á sjónmælingu?

Hvað er nærsýni?

Nærsýni orsakast oftast af því að augun eru of löng og því fellur fókuspunkturinn of framarlega í augað í stað þess að lenda á
sjónhimnunni í augnbotninum. Með nærsýnisglerjum, sem eru þunn í miðju en þykk til jaðranna má færa fókusinn aftar í augað. Þetta
eru kölluð mínusgler.

Ef bara hlutir nálægt þér eru skýrir

Annað hvort eru augu þín of löng (stór) eða hornhimnan of kúpt. Ljós er þar með fókuserað
í punkti fyrir framan miðgróf sjónhimnunnar. Þannig sérð þú einungis skýrt nálægt þér.
Fjarlægðin er því ekki í fókus.

Meðferð

Hornhimnan er gerð flatari með lasermeðferð og minnkar þannig nærsýnin með því að
fókuspunkturinn færist í miðgrófina, með þessu er óbeint verið að ,,stytta” augað.
Hægt er að leiðrétta nærsýni með sjónlagsaðgerð.

Hvað er fjarsýni?

Fjarsýni er í raun það þveröfuga við nærsýni, þ.e. augað er of stutt og því fellur fókuspunkturinn aftan við augað í stað
þess að lenda á sjónhimnunni í augnbotninum. Með fjarsýnisglerjum, sem eru þykk í miðju og þunn til jaðra má færa fókusinn framar
í augað. Þetta eru kölluð plúsgler.

Ef þú sérð illa nálægt þér

Hér er augað ýmist of stutt (lítið) eða hornhimnan of flöt sem leiðir til þess að ljósið er
fókuserað í punkti aftan við miðgrófina. Þannig eru hlutir nálægt þér ekki í fókus.

Meðferð

Með lasermeðhöndlun er hornhimnan gerð kúptari og styrkleiki hennar aukinn. Við það
færist fókuspunkturinn fram í miðgróf augans og myndin nálægt þér verður í fókus.
Hægt er að leiðrétta fjarsýni með sjónlagsaðgerð.

Hvað er sjónskekkja?

Sjónskekkja veldur því að mynd verður skökk og út úr fókus. Þessu veldur oftast skekkja í hornhimnunni, sem er glær kúpull framan
á auganu. Þessi kúpull á að vera eins og evrópskur fótbolti í laginu – í sjónskekkju er hann hins vegar eins og amerískur fótbolti í laginu.
Því verður myndin skökk.

Sjónskekkja

Hér mætast ljósgeislarnir ekki í einum punkti heldur í 2 puntum. Við það verður til bjögun í
myndinni sem kallast sjónskekkja. T.d. virðist punktur verða líkari línu eða bletti.

Meðferð

Unnið er gegn sjónskekkju með lasermeðferð sem tekur mið af aflögun hornhimnunnar og
leiðréttir þannig að kúptleiki hennar verður sá sami í öllum 360° hornhimnunnar. Við það
fókuserast ljósið í einum punkti í miðgróf augans. Hægt er að leiðrétta sjónskekkju með
sjónlagsaðgerð